Minni svíta




Hótel Holt státar af 8 minni svítum, junior svítum (40 fm).
Um er að ræða rúmbetri herbergi með rúmi í King stærð og sófa sem hægt er að nýta fyrir aukagesti. Allar minni svítur hússins eru annaðhvort með baðkari og/eða sturtu.

Minni svítur hótelsins eru allar vel útbúnar og með öllu því besta sem völ er á hverju sinni. Þessi tegund herbergja er tilvalin fyrir viðskiptaferðamanninn sem þarf nóg rými, sem og fjölskyldur sem ferðast saman.

Inni á hverri minni svítu er að finna minibar, gervihnattarsjónvarp með aðgengi að helstu sjónvarpsrásum, hárþurrku, baðsloppa, kaffi- og tebakka, síma, buxnapressu og öryggisskáp.
Auk þess er þráðlaust internet á öllum herbergjum, gestum okkar að kostnaðarlausu.

Af þeim átta minni svítum sem eru á hótelinu eru Ã¾rjár með útsýni yfir Reykjavík.

 

Hótel Holt - Bergstadastraeti 37 - 101 Reykjavik - Iceland - Tel +354 552 5700 Fax +354 562 3025 - e-mail holt@holt.is