|

Hótel Holt býður upp á 10 tveggja manna herbergi.
Öll tveggja manna herbergin eru með sturtu.
Herbergin eru öll rúmgóð og þægileg hvort sem er fyrir par eða tvo einstaklinga.
Hægt er að óska eftir tveimur eins manns rúmum jafnt sem hjónarúmi.
Á öllum herbergjum er minibar, gervihnattasjónvarp með aðgengi að helstu sjónvarpsrásum, hárþurrka, baðsloppar, sími og öryggisskápur. Auk þess er þráðlaust internet á öllum herbergjum, gestum okkar að kostnaðarlausu.
|