Gallery Restaurant


Bordeaux veisla í Viðeyjarstofu 7. júní

Cháteau Pichon-Longueville

Það er komin áralöng hefð fyrir Bordeaux-dögunum á Gallery Restaurant þar sem fulltrúar þekktustu vínhúsa Bordeaux í Frakklandi hafa komið
hingað til lands, haldið fyrirlestur og smökkun auk þess sem gestum gefst kostur á að snæða dýrindis máltíð með vínum viðkomandi vínhúss.
Gallery Restaurant sér um allar veitingar í Viðeyjarstofu og verður sannkölluð hallarveisla haldin í eyjunni fögru.
Í ár mun Corinne Michot verða fulltrúi Bordeaux en hún starfar fyrir Château Pichon-Longueville Baron í Pauillac og fleiri þekkt vínhús.

Bókaðu borð strax á þennan einstaka viðburð - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Matseðill

Veuve Clicqout Champagne
Canapé

S de Suduiraut 2011
Humar, blálanga og eldsteikt epli

Ch. Pibran 2008
Mjólkurkálfur og steikt andarlifur á ofnbakaðri sellerírót

Ch. Tourelles de Longueville 2005
Lambalundir #Wellington# og brasseruð lambasíða

Ch. Pichon Longueville Baron 2002
Ch. Pichon Longueville Baron1996

Steiktar Nautalundir á ´la minute og ferskar sumartrufflur

Ch. Suduiraut 2006
Íslenskir eðal ostar, klettasalat og grænmetissulta

Disznókó Aszu 5 p 2005
Hvítt súkkulaði Opalys 33% frá Valrhona, kardimommur og sítrus ávextir

25.900.-


Innifalið í verðinu er ferjan, kvöldverður og sérvalin vín frá Bordeaux
Báturinn fer frá Skarfabakka kl. 19:00

Einungis í Viðeyjarstofu þann 7. júní
Fá sæti í boði.
Borðabókanir á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 533 5055


Château Pichon Baron Longueville er ein glæsilegasta höll eða kastali Bordeaux-héraðsins og þaðan koma sömuleiðis einhver bestu vín undir svæðinu Pauillac. Kastalinn stendur syðst í Pauillac, nálægt bæjarmörkunum að Saint-Julien og vekur athygli allra sem aka fram hjá honum. Þessi ævintýrahöll er ekki bara einn fallegasta bygging svæðisins heldur sömuleiðis eitt
allra besta víngerðarhús Bordeaux og hefur með 2010 árganginum skipað sér í röð allra fremstu vína svæðisins.
Vín þess eru bæði tignaleg og risavaxin og skila öllu því besta eftir góða kjallarageymslu. Seinna vín hússins er eins konar litli bróðir Château-vínsins er unnið úr og nefnist Tourelles de Longueville Château Pibran er virt vínhús í Pauillac og ekrur þess liggja að ekrum mjög þekktra vínhúsa á borð við Pontet Canet, Mouton Rothschild og Lynch Bages. Vín hússins eru stór og öflug með mikla lengd og þokka.


Nýjar áherslur í hádeginu

Brasserie matseðill er í boði alla daga frá 12.00-14.00.
Matseðillinn inniheldur mikið úrval af frönskum klassískum réttum ásamt þriggja rétta matseðli vikunnar.

Orðið Brasserie á frönsku þýðir brugghús og upprunalega er það til komið vegna þess að bjór var bruggaður á staðnum frekar en að vera keyptur inn.
Þess vegna bjóðum við uppá sérbruggaðan bjór frá Brugghús - Kalda.

Brasserie matseðill


Viðeyjarstofa

Gallery Restaurant sér um allar veitingar í Viðeyjarstofu, elsta steinhúsi landsins.
Viðey býður uppá einstæð salarkynni fyrir brúðkaup, árshátíðir, fundi, veislur, jólahlaðborð og aðrar samkomur.
Nánari upplýsingar á www.videyjarstofa.is

 

Gjafakort

Gjafakort frá okkur er skemmtileg gjöf fyrir fólk á öllum aldri, hvort sem það er sem hádegisverður, kvöldverður eða matreiðslunámskeið.

Hugmyndir af gjafakortum:
-Kjarvalsmatseðill er fimm rétta kvöldseðill með lystauka úr eldhúsinu.
Þessi seðill inniheldur það besta úr eldhúsinu og breytist fjórum sinnum á ári.
Verð: 9500.- fyrir einn
ásamt fimm glösum af borðvíni: 17.900.-

-Árstíðarseðill er fjögurra rétta matseðill með lystauka úr eldhúsinu.
Þessi seðill breytist eftir árstíðum, sumarseðill, jólaseðill, haustseðill og vetrarseðill.
Verð: 7900.- fyrir einn
Ásamt fjórum glösum af borðvíni: 14.500.-

-Hádegisverður er þriggja rétta matseðill sem breytist vikulega.
Verð: 3500.- fyrir einn

- Inneign
Einnig er hægt að ákveða upphæð sem gildir bæði fyrir hádegi og kvöld þar sem hver velur fyrir sig.

Matreiðslunámskeið
Verð: 13.900.- fyrir einn
Innifalið í verðinu er borðvín og matreiðslumappa sem inniheldur uppskriftir kvöldsins.

Nánari upplýsingar á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Happy hour alla daga frá 16-19

Stella og Kaldi á krana, rauðvín, hvítvín, freyðivín og kokteill dagsins er á hálfvirði alla daga frá 16-19.
Einnig bjóðum við uppá bar matseðil 


Vertu meðlimur á póstlistanum okkar þar sem þú færð sendar tilkynningar og ýmis tilboð

 

~~~~~~~~~~

 

  FACEBOOK  TWITTER

 

Hótel Holt - Bergstadastraeti 37 - 101 Reykjavik - Iceland - Tel +354 552 5700 Fax +354 562 3025 - e-mail holt@holt.is