|

Listasafnið Hótel Holt
Stofnendur hótelsins, Þorvaldur Guðmundsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir, voru ötulir listaverkasafnarar og ber hótelið þess glöggt merki.
Á Hótel Holti prýða íslensk listaverk öll herbergi hótelsins, og hið sama gildir um veitingastaðinn, barinn, koníakstofuna og funda- og veislusalinn Þingholt. Um er að ræða þekkt verk eftir þekktustu listamenn landsins.
Á Hótel Holti er að finna eitt stærsta listaverkasafn í einkaeigu á Íslandi og á húsið engan sinn lika hér á landi.
|