Fjórar notalegar og rúmgóðar svítur eru á hótelinu, búnar öllum helstu þægindum sem tryggja ánægjulega dvöl. Meðalstærð þeirra er 38 m2 og er rýmið tvískipt. Rúmin í svítunum eru 180 cm og hægt er að búa um auka rúm á svefnsófa.
ERTU MEÐ EINHVERJAR SÉRÓSKIR VEGNA DVALAR ÞINNAR HJÁ OKKUR?
Langar þig að koma einhverjum á óvart? Halda upp á eitthvað?
Við getum komið nánast hverju sem er í kring, endilega hafðu samband ef þú ert með einhverjar séróskir í huga.